Fulham 3 - 1 Burnley
0-1 Zian Flemming ('60 )
1-1 Josh King ('67 )
2-1 Harry Wilson ('73 )
3-1 Raul Jimenez ('90, víti )
Rautt spjald: Josh Laurent, Burnley ('90)
0-1 Zian Flemming ('60 )
1-1 Josh King ('67 )
2-1 Harry Wilson ('73 )
3-1 Raul Jimenez ('90, víti )
Rautt spjald: Josh Laurent, Burnley ('90)
Harry Wilson heldur áfram að vera drjúgur fyrir Fulham en hann var hetjan í sigri gegn Burnley á heimavelli í dag.
Bæði þessi lið gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik og þannig var staðan einnig þegar flautað var til hálfleiks í dag.
Það var hins vegar fjör í seinni hálfleiknum. Zian Flemming, sem hefur átt fínasta tímabil með Burnley, kom gestunum yfir eftir klukkutíma leik en við það kviknaði á heimamönnum.
Hinn stórefnilegi Josh King jafnaði metin á 67. mínútu og sex mínútum síðar gerði Harry Wilson flott mark. Wilson er búinn að koma að 16 mörkum á þessu tímabili.
Raul Jimenez gulltryggði sigurinn í blálokin með marki úr vítaspyrnu eftir að það var brotið á honum. Josh Laurent fékk að líta rauða spjaldið fyrir brotið.
Fulham hoppar upp í áttunda sæti með þessum sigri og geta leyft sér að dreyma um Evrópu. Burnley eru hins vegar níu stigum frá öruggu sæti og talsvert miklar líkur á því að þeir verði í Championship á næsta tímabili.
Athugasemdir

