Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 25. mars 2026 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Umboðsmaður Dybala í Róm - Tvö tilboð á borðinu
Paulo Dybala.
Paulo Dybala.
Mynd: EPA
Samband Paulo Dybala og Roma virðist hafa endað skyndilega á þessu frekar stormasama tímabili. Dybala hentar ekki í leikstíl Gian Piero Gasperini, stjóra Roma, þar sem hann er ekki nægilega líkamlega sterkur.

Samningur Dybala rennur út í sumar og mun hann þá yfirgefa Roma á frjálsri sölu.

Jorge Antun, umboðsmaður Dybala, hefur verið myndaður í Róm í vikunni og vakti það athygli, en hann er ekki mættur til að ræða framtíð leikmannsins.

Hann er bara mættur til að heimsækja fjölskyldu Dybala og ekki síst dóttur hans sem fæddist bara fyrir rúmum þremur vikum.

Tvö áhugaverð tilboð liggja nú þegar á borðinu hjá umboðsmanni Dybala. Fyrra tilboðið, sem hefur þegar verið mikið rætt, myndi færa hann yfir til Argentínu þar sem Boca Juniors vill fá hann í sitt verkefni, undir forystu vinar hans Leandro Paredes.

Hitt tilboðið kemur frá Tyrklandi þar sem stórlið Galatasaray er tilbúið að bjóða honum þriggja ára samning með mun betri fjárhagslegum kjörum en í Argentínu, sérstaklega ef félagið tryggir sér sæti í Meistaradeildinni.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
Athugasemdir
banner
banner