Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 26. mars 2023 17:33
Brynjar Ingi Erluson
Sleggja sem sló Dani út af laginu
Mynd: Getty Images
Danir töpuðu óvænt fyrir Kasakstan, 3-2, í undankeppni Evrópumótsins í dag en liðið var tveimur mörkum yfir þegar tæpar tuttugu mínútur voru eftir. Stórkostlegt jöfnunarmark Kasakstan sló Dani út af laginu.

Rasmus Hojlund skoraði mörk danska liðsins áður en heimamenn fengu vítaspyrnu eftir að Jonas Wind handlék boltann í teignum.

Kasakstan minnkaði muninn úr vítaspyrnunni og það var síðan jöfnunarmarkið sem fór ansi illa með Dani.

Askhat Tagybergen var með boltann langt fyrir utan teiginn og hamraði honum efst í hægra hornið. Gjörsamlega óverjandi fyrir Kasper Schmeichel en þetta glæsilega mark má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Tagybergen
Athugasemdir
banner
banner