Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 26. maí 2019 10:43
Ívan Guðjón Baldursson
Kante tæpur fyrir úrslitaleikinn
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn öflugi N'Golo Kante hefur verið að glíma við meiðsli og versnuðu þau á æfingu Chelsea um helgina.

Kante er því tæpur fyrir úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Arsenal. Leikurinn fer fram á miðvikudaginn.

Þá varð Jorginho fyrir minniháttar meiðslum á æfingu í síðustu viku en hann ætti að vera klár í að byrja úrslitaleikinn.

Callum Hudson-Odoi og Ruben Loftus-Cheek eru þegar frá vegna meiðsla rétt eins og Antonio Rüdiger. Varnarmaðurinn ungi Nathan Ampadu er hins vegar kominn aftur úr meiðslum og verður líklega á bekknum.

Chelsea endaði í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er því búið að tryggja sæti sitt í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á næsta tímabili. Arsenal þarf hins vegar að sigra úrslitaleikinn til að ná Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner