Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 15:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dóri Árna: Ósammála því að það sé forgjöf í fótbolta
Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks.
Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Verða að nýta stöðurnar betur.
Verða að nýta stöðurnar betur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Þetta er bara mín upplifun og ég hef rétt á henni'
'Þetta er bara mín upplifun og ég hef rétt á henni'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bæði Rúnar og Dóri voru svekktir með niðurstöðuna og upplifðu leikinn þannig að þeirra lið hefði verið betra.
Bæði Rúnar og Dóri voru svekktir með niðurstöðuna og upplifðu leikinn þannig að þeirra lið hefði verið betra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðabik gerði 1-1 jafntefli við Fram á mánudagskvöld í 12. umferð Bestu deildarinnar. Fram komst yfir í leiknum en Breiðablik jafnaði með marki úr umdeildri vítaspyrnu undir lok leiks.

Viðtöl við Halldór Árnason, þjálfara Breiðabliks, eftir leikinn vöktu athygli, sérstaklega viðtalið við Vísi. Fótbolti.net ræddi við Dóra í dag og var hann spurður út í síðasta leik.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  1 Fram

„Eins og ég sagði í viðtölum eftir leik, við vorum að spila á móti liði sem liggur í 5-3-2/5-4-1 lágblokk og 'breikar' hratt. Þeir eru bara virkilega góðir í því, vilja ekki láta toga sig út úr forminu sínu. Ég er búinn að horfa á leikinn aftur, við gerðum það ótal sinnum í fyrri hálfleik, stöðurnar sem við komumst í, inn í teignum og kringum teiginn þeirra, eru frábærar. Við vorum bara því miður á algjörum 'off' degi þegar kom að ákvarðanatöku og gæðum í þeim stöðum. Við náðum ekki að skapa marktækifæri úr þeim stöðum og okkur er refsað grimmilega fyrir það. Það er bara ömurlegt, en gott að koma til baka og ná stigi úr því sem komið var. Þannig var mín upplifun og var aftur mín upplifun þegar ég horfði á leikinn aftur."

„Ég skil það, og sýni því alveg skilning að þeir sem sitja í stúkunni og horfa á þetta utan frá telja markskotin, vörslur markmanna og hversu oft þú hittir á markið og skorar. Það er það sem fótbolti snýst um. En við komumst í frábærar stöður og spiluðum mjög vel sóknarlega, opnuðum Framarana miklu meira en ég hef séð þá opnaða áður á þessu tímabili. Þetta er bara mín upplifun og ég hef rétt á henni."

„Það er bara þannig í fótbolta að það eru tvö lið sem spila, 90 mínútur, ellefu á móti ellefu. Stundum eru jafnir leikir, stundum er annað liðið betra og hitt verra. Upplifun manna er oft þannig að það sé forgjöf, ef hærra skrifaða liðið er kannski ekki alveg á deginum sínum, kannski ekki alveg jafngóðir og þeir voru í síðasta leik, og liðið sem er lægra skrifað og kannski mætir í leikinn til að verjast er kannski aðeins betra en menn bjuggust við, þá er kannski upplifunin að það lið hafi verið betra í leiknum. En ég ætla fá að vera ósammála því. Mér fannst við virkilega góðir í fyrri hálfleik, lendum svo undir á móti Fram sem er snúin staða. Við tökum þetta stig og áfram gakk."


Ánægjuefnið hlýtur að vera að hafa komist þó í þessar stöður, eða hvað?

„Já, ég er mjög ánægður með það, en ég hef samt áhyggjur af því hvernig við förum með þessar stöður og færi. Við tókum góðan fund daginn eftir leik og fórum yfir þetta allt. Það var svolítið sjokkerandi fyrir menn að sjá hversu góðar stöður við fengum. Það reynir bara á okkur í teyminu og liðið að finna út hvernig við viljum fylla teiginn og hvaða ákvörðun við tökum hverju sinni; hvaða svæði við leitum í í fyrirgjöfum og öðru. Það þýðir ekki bara að loka augunum og vona að þetta komi að sjálfu sér. En jú, jákvætt hvernig við komumst í stöðurnar, gríðarlega fallegar sóknir sem við áttum í fyrri hálfleik, og ég er ánægður með það," segir Dóri.

Næsti leikur Breiðabliks verður gegn Stjörnunni á útivelli annað kvöld. Leikurinn verður flautaður á klukkan 19:15 og fer fram á Samsungvellinum.

Viðtalið við Fótbolta.net eftir síðasta leik má nálgast hér að neðan.
Athugasemdir
banner
banner