Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 27. september 2019 10:30
Magnús Már Einarsson
Mason Greenwood gæti byrjað gegn Arsenal
Mynd: Getty Images
Hinn 17 ára gamli Mason Greenwood gæti byrjað sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni þegar Manchester United fær Arsenal í heimsókn á mánudagskvöld.

Marcus Rashford og Anthony Martial verða líklega ekki með Manchester United á mánudag vegna meiðsla. Greenwood gæti því fengið sénsinn í byrjunarliðinu eftir mörk sín gegn Astana og Rochdale.

„Það gæti gerst. Hann hefur sannað sig þegar hann er inni á vellinum. Gegn Astana og Rochdale sýndi hann að hann er hættulegur þegar hann kemst inn í teiginn," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United í dag.

„Það sem gleður mig við hann er að hann klikkar ekki á færum þó að hann sé ekki orðinn 18 ára gamall. Ég hef engar áhyggjur af honum."

„Við höfum stýrt honum. Þú getur ekki hent honum í djúpu laugina alltaf. Hann hefur hins vegar sýnt í þessum leikjum að hann er klár. Enska úrvalsdeildin? Ég hef helgina til að hugsa um þetta."

Athugasemdir
banner
banner
banner