Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Stefano Pioli efstur á óskalistanum
Mynd: EPA
Gian Piero Gasperini hefur sagt upp starfi sínu sem aðalþjálfari Atalanta eftir níu farsæl ár með félaginu. Gasperini skilaði Evrópudeildartitli til félagsins og var þar að auki valinn sem þjálfari ársins í ítölsku deildinni 2019 og 2020.

Hann er núna að taka við hjá AS Roma sem hefur verið í miklum þjálfaravandræðum á undanförnum árum.

Stjórn Atalanta hefur þegar sett sig í samband við mögulegan arftaka Gasperini. Sá heitir Stefano Pioli og þjálfar sádi-arabíska stórveldið Al-Nassr sem stendur.

Pioli hefur ekki verið að gera frábæra hluti hjá Al-Nassr og gæti yfirgefið félagið í sumar. Hann er efstur á óskalistanum hjá Atalanta.

Pioli er 59 ára gamall og þjálfaði síðast AC Milan í ítalska boltanum, eftir að hafa verið við stjórnvölinn hjá Fiorentina, Inter, Lazio og Bologna þar áður.

Pioli leiddi Milan til langþráðs Ítalíumeistaratitils tímabilið 2021-22 en það er hans eini titill á þjálfaraferlinum.

Pioli vann nokkra titla með Juventus á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta, ferill sem náði aldrei miklum hæðum.
Athugasemdir
banner
banner