Bandaríkjamaðurinn Todd Boehly heldur áfram að taka til hjá Chelsea, hann heldur áfram að gera breytingar á bak við tjöldin.
Hann tók við eignarhaldi hjá félaginu í sumar og hefur hægt og rólega verið að fá inn sitt fólk hjá félaginu.
Núna er hann byrjaður að taka til í læknadeildinni hjá Chelsea. Hann rak Thierry Laurent, sem hefur starfað sem yfir sjúkraþjálfari hjá félaginu síðustu árin, í gær. Boehly lét Laurent vita af tíðindunum á myndbandsfundi í gær, en hann hafði starfað fyrir Chelsea í 17 ár.
Bandaríski eigandinn er einnig búinn að reka Dr Paco Biosca sem var háttsettur í læknateyminu. Hann starfaði fyrir Chelsea í ellefu ár.
Boehly er að endurbyggja innviði félagsins eftir sínu höfði og er þessir brottrekstrar eru hluti af því.
Athugasemdir