Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
banner
   mán 30. mars 2026 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einar Guðna: Frábært að hún sé loksins valin í landsliðið
Eimskip
Einar ræðir við Lindu Líf.
Einar ræðir við Lindu Líf.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á að baki 12 leiki fyrir yngri landsliðin.
Á að baki 12 leiki fyrir yngri landsliðin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skoraði átta mörk í Bestu deildinni í fyrra í 20 leikjum.
Skoraði átta mörk í Bestu deildinni í fyrra í 20 leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Linda Líf Boama var á föstudag valinn í A-landsliðið í fyrsta sinn á ferlinum. Linda er 24 ára sóknarmaður sem hélt í atvinnumennsku í vetur; samdi við Kristianstad í Svíþjóð eftir þrjú tímabil hjá Víkingi. Hún fagnaði valinu með því að skora og leggja upp í fyrsta deildarleiknum í Svíþjóð um helgina.

„Ef Linda heldur áfram að bæta sig, heldur áfram að haldast heil og vera í góðu standi, þá gæti maður alveg séð Lindu spila alveg fullt fullt af landsleikjum í framtíðinni. Ég vonast til að hún komi og sýni sínar allra bestu hliðar og njóti þess að vera í hópnum með okkur núna og taki jákvæð skref fram á við til að fá mínútur með okkur," sagði landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson um Lindu á föstudaginn.

Fótbolti.net ræddi í dag við Einar Guðnason, þjálfara Víkings, um Lindu.

„Það er frábært að hún sé valin loksins. Að mínu mati er þetta verðskuldað og hún sýndi það svo sannarlega í síðasta leik með Kristianstad," segir Einar.

Stór persónuleiki sem smitar vel út frá sér
Hver er hennar helsti styrkleiki?

„Hún er með marga styrkleika, hið augljósa er auðvitað hraði og styrkur en hún leynir líka á sér í þessu fína sem kemur oftast best í ljós þegar henni líður vel og er með mikið sjálfstraust. Hún er líka með stóran persónuleika sem smitar vel út frá sér á vellinum."

Erfitt að eiga við hana í þannig stöðu
Einar tók við Víkingi um mitt sumar eftir erfiða byrjun á mótinu. Hún skoraði sex mörk eftir að þú komst inn, hvernig varstu að reyna hámarka hennar frammistöðu?

„Við notuðum hana bæði sem senter í tveggja sentera kerfi eins og hún er í núna hjá Kristianstad en líka úti á hægri væng. Hún lenti í smá meiðslum í fyrra sumar þannig að við fengum ekki að nota hana eins mikið og við hefðum viljað en við reyndum að koma henni í einn á einn stöðu með svæði þar sem erfitt er að eiga við hana."

Meira en að segja það
Var högg að missa hana út í atvinnumennsku? Ertu búinn að finna mann í „staðinn"?

„Það er meira en að segja það að finna leikmenn til að leysa Lindu Líf af en við erum með flotta leikmenn sem munu spila þær stöður sem hún spilaði í fyrra, en á annan hátt."

Sáttur með hópinn
Hvernig líst þér á stöðuna á Víkingi í dag, ertu sáttur við stöðuna á hópnum eða þarf að styrkja hópinn fyrir mót?

„Við erum mjög sátt með hópinn okkar og erum ekki að leita eftir styrkingu en ef eitthvað óvænt kemur upp þá að sjálfsögðu skoðum við það," segir Einar.

Ísland tekur á móti Úkraínu og Englandi á Laugardalsvelli eftir rúmlega tvær vikur. Besta deildin hefst svo í kjölfar landsleikjanna.
Slapp
Athugasemdir