Mohamed Salah yfirgefur Liverpool í sumar og hann hefur verið m.a. orðaður við Sádi-Arabíu og Bandaríkin. Ibrahim Hassan, framkvæmdastjóri egypska fótboltasambandinu, vonast til að Salah fari ekki til Bandaríkjanna.
„Ég myndi helst vilja að hann yrði áfram í Evrópu. Ég hef heyrt um tilboð frá PSG, Bayern og félögum í ítölsku deildinni," sagði Hassan.
„Hann yrði alltof langt frá sviðsljósinu ef hann færi til Bandaríkjanna. Menn muna ekki eftir Salah eins og ég man ekki eftir Messi núna. Ég reyni ekki einu sinni að fylgjast með honum."
Salah hefur ekki náð sér á strik á þessu tímabili en hann hefur skorað 255 mörk, lagt upp 122 í 435 leikjum fyrir Liverpool á níu árum.
Athugasemdir

