Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
banner
   fim 31. mars 2022 23:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viktor Karl: Eitthvað sem kom upp á borðið og mér fannst spennandi
,,Er ekkert að loka á neitt''
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Karl Einarsson skrifaði á dögunum undir fjögurra ára samning við Breiðablik. Hann mætti á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddi um nýja samninginn, atvinnumennsku, landsliðið og komandi tímabil með Breiðabliki.

Viktor er 25 ára miðjumaður sem uppalinn er í Breiðabliki, fór 2013 til AZ Alkmaar í Hollandi var þar í fimm ár, millilenti í Varnämo í Svíþjóð þar sem hann var í rúmt hálft ár og kom aftur í Breiðablik fyrir tímabilið 2019.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan

„Þetta var eitthvað sem kom upp á borðið og við ræddum. Mér fannst þetta bara spennandi og Blikum líka. Ég veit svo sem ekki af hverju fjögur ár en mér finnst bara allt sem er í gangi í Breiðabliki vera spennandi; þetta verkefni sem er í gangi og þessi vegferð sem við erum á. Ég var bara til í þetta," sagði Viktor.

Ertu að minnka eitthvað líkurnar á því að þú farir út í atvinnumennsku með því að skrifa undir fjögurra ára samning?

„Ég er lítið að pæla í því. Ég er bara spenntur fyrir komandi tímabili með Blikum og hef svo sem ekki verið mikið að pæla í einhverri atvinnumennsku. Ég held að ef þú stendur þig nógu vel og skorar fullt af mörkum þá kemur alltaf eitthvað tækifæri. Ég er ekkert að loka á neitt held ég en er að einbeita mér að Breiðabliki og því sem er í gangi þar."

Hafið þið Blikar horft mikið til baka á síðasta tímabil?

„Maður hefur oft hugsað til baka og auðvitað var þetta leiðinlegt. En það er eitthvað sem við tökum með okkur og ætlum að gera betur. Það er ekki hægt að horfa til baka og vera svekktur. Við erum bara spenntir fyrir komandi tímabili og ætlum að gera betur," sagði Viktor.
Slapp
Athugasemdir
banner