,,Við erum rosalega ánægðir með að koma upp á skaga og spila á móti eina taplausa liðinu í deildinni sem voru á toppnum og vinna 4-0, það gerist ekki mikið betra," sagði Magnús Gylfason þjálfari ÍBV eftir 4-0 sigur á ÍA á Akranesi í kvöld.
Lestu um leikinn: ÍA 0 - 4 ÍBV
,,Þetta var þriðji sigurinn í röð, við unnum líka síðast Stjörnuna sem þá voru taplausir. Mér finnst við hafa verið ágætir frá annarri umferð. Við vorum lélegir á móti Selfossi en eftir það búnir að vera sæmilegir. Við vorum óhepppnir bæði með dómgæslu og klúður á færum í leikjunum á milli. En þetta var allavega góður sigur og við tökum bara þennan leik og förum að einbeita okkur að Grindavíkurleiknum á morgun."
Magnús nýtti tækifærið og skaut aftur á umræðu í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport.
,,Það er frábært að fá þessa menn inn sem ekkert munar um eins og Tóta og Tryggva sem eru að koma úr meiðslum, en það munar ekkert um þá," sagði hann og vísaði í Þórarinn Inga og Tryggva Guðmundsson.
,,Þetta eru leikmenn sem ógnuðu meira en við höfum verið að gera. Heilt yfir munar meira um í því að fá karakterinn í kringum þá, kraftinn og viljann. Það er það sem vantaði í fyrstu leikjunum."
























