,,Mér leið ágætlega inni á vellinum, það var smá stress fyrst, fyrstu 15-20 mínúturnar. Síðan vandist þetta bara, byrjaði að koma mér inn í leikinn og þá kom þetta smátt og smátt," sagði Bjarki Pétursson varamarkvörður Bí/Bolungarvíkur sem spilaði óvænt sinn fyrsta meistaraflokksleik í gær í 2-2 jafntefli gegn Fjölni en Þórður Ingason markvörður BÍ/Bolungarvíkur meiddist í upphitun.
,,Ég var klár í að fara að hita Þórð upp eins og við gerum vanalega en svo fær hann eitthvað í bakið í upphituninni og það var sagt við mig 20 mínútum fyrir leik að ég eigi að vera klár. Maður verður að vera klár þegar maður á að vera klár."
BÍ/Bolungarvík var manni fleiri í restina og leiddi 2-1 en gestirnir í Fjölni jöfnuðu á 94. mínútu.
,,Þetta var rosalega sorglegt. Þetta er í þriðja sinn í röð sem þetta gerist á móti þessu liði. Ég ætlaði ekki að fá á mig mark þessar síðustu mínútur en einhvern veginn þá náðu þeir að troða þessu inn í lokin. En ekkert ósanngjarnt jafntefli, ég viðurkenni það."
,,Þeir dældu boltanum hvað eftir annað innfyrir vörnina okkar og við náðum að verjast vel en það dugði ekki til því miður. Við reyndum okkar besta."
Að lokum var Bjarki spurður hvort hann væri kominn til að vera í markinu.
,,Nei, ég segi það ekki. Þórður er alltaf númer eitt eins og stendur en ég læri bara af honum."
























