Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
   lau 25. ágúst 2012 17:36
Brynjar Ingi Erluson
Ágúst Gylfa: Við þurfum að girða okkur í brók
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Maður er frekar svekktur yfir því að við vildum ekki meira úr þessu. Við áttum þvílíka sénsa að komast í annað sætið og gera atlögu að þessu, en því miður vantaði karakter, vinnslu og baráttuna í mannskapinn okkar í dag," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis eftir 2-1 tap gegn Tindastól í dag.

,,Við vorum undir nokkurn veginn og Tindastóll var ekki að spila sinn besta leik, en við náðum ekki að gera atlögu að þessu því miður og töpuðum sannfærandi. Þú þarft að hafa baráttuna til staðar í leikjum, hún var ekki í dag og þá tapar þú, nema maður sé heppinn."

,,Tindastóll gerði það sem til þurfti og voru með góða baráttu, en voru ekki að spila sinn besta leik en það nægði þeim í botnbaráttunni og koma sér aðeins út úr henni með þremur stigum."

,,Við höldum bara áfram og sjáum til. Við eigum næst heimaleik gegn Hetti og þurfum þrjú stig þar til að halda áfram í baráttunni, en frekar svekktur eftir þennan leik eðlilega. Við höfðum séns, en brettum ekki upp ermar."

,,Það eru fjórir leikir eftir og við þurfum að klára alla þessi leiki, þá er þetta líklega í höfn, en ef við spilum eins og í dag þá verður þetta erfitt. Við þurfum að girða okkur í brók, það er vika í næsta leik og við þurfum að skoða hvað fór úrskeiðis,"
sagði Ágúst að lokum.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner