Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   þri 13. desember 2022 21:57
Hafliði Breiðfjörð
Bose mótið: KR og Fram gerðu sex marka jafntefli
Sigurður Bjartur skoraði jöfnunarmark KR í kvöld.
Sigurður Bjartur skoraði jöfnunarmark KR í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR 3 -  3 Fram
0 - 1 Breki Baldursson
0 - 2 Magnús Ingi Þórðarson
0 - 3 Tryggi Snær Geirsson
1 - 3 Aron Þórður Albertsson
2 - 3 Aron Kristófer Lárusson
3 - 3 Sigurður Bjartur Hallsson

KR og Fram gerðu 3 - 3 jafntefli í Bose-mótinu í kvöld en leikið var í vesturbænum.

Fram komst í 3 - 0. Breki Baldursson skoraði fyrsta markið sem þótti gullfallegt og í kjölfarið komu mörk frá Magnúsi Þórðarsyni og Tryggva Snæ Geirssyni.

Þá var komið að  KR  að skora mörkin, þeir settu næstu þrjú og lokaniðurstaðan 3 - 3. Aron Þórður Albertsson, Aron Kristófer Lárusson og Sigurður Bjartur Hallsson skoruðu  mörk KR.

KR vinnur A-riðil, með jafnmörg  stig og mörk í plús og Fram en skoraði fleiri mörk. KR  fer í úrslitaleikinn en ekki verður ljóst fyrr en á fimmtudaginn hverjum þeir mæta þegar Valur og Víkingur spila innbyrðis.


Hér að neðan má sjá leikjaplanið og úrslit leikja og stöðuna í riðlunum.

A Riðill
1. KR (4 stig +1)
2. Fram (4 stig +1)
3. Breiðablik (0 stig -2)

B Riðill
1. Stjarnan (4 stig +1)
2. Víkingur R. (1 stig 0) 
3. Valur (0 stig -1)

Laugardagurinn 3. desember
12:00 FRAM 3 - 2 Breiðablik (Úlfarsárdalsvöllur)  | Mörkin

Miðvikudagurinn 7. desember
19:00 Víkingur 1 - 1 Stjarnan (Víkingsvöllur)

Fimmtudagurinn 8.desember
19:00 Breiðablik 3 - 4 KR (Kópavogsvöllur)

Laugardagurinn 10.desember
12:00 Stjarnan 4 - 3 Valur (Samsungvöllur) | Myndir

Þriðjudagurinn 13.desember
17:00 KR 3 - 3 FRAM (KR völlur)

Fimmtudagurinn 15.desember 2022
19:00 Valur - Víkingur (Origovöllur)


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner