Nottingham Forest er í leit að nýjum miðjumanni og hefur snúið sér að Arne Engels leikmanni Celtic.
Davide Frattesi virtist vera á leið til Forest á lánssamningi með kaupmöguleika en félagaskiptin frá Inter hafa tafist vegna þess að ítalska félaginu gengur illa að finna staðgengil á miðsvæðið sitt.
Frattesi hefur fengið afar lítinn spiltíma undir stjórn Christian Chivu og er spenntur fyrir félagaskiptum, en félagið gæti þurft að halda í hann. Inter reyndi við Curtis Jones hjá Liverpool án árangurs.
Janúarglugginn lokar seinni partinn á morgun og því er Forest að undirbúa tilboð fyrir Engels. Sky Sports greinir frá.
Engels er belgískur landsliðsmaður og algjör lykilmaður á miðjunni hjá Celtic. Hann er næstdýrasti leikmaður í sögu félagsins og er talið afar ólíklegt að Skotlandsmeistararnir séu reiðubúnir til að selja hann á þessum tímapunkti tímabilsins, sérstaklega í ljósi vandræða í titilbaráttunni heimafyrir.
Þýska félagið RB Leipzig spurðist fyrir um Engels fyrr í janúar en lagði ekki fram tilboð. Miðjumanninum líður vel hjá Celtic og er með tvö og hálft ár eftir af samningi.
Auk þess að vilja nýjan miðjumann er fallbaráttulið Forest einnig í leit að nýjum varnarmanni fyrir gluggalok.
Uppfærsla: Forest er búið að bjóða 14 milljónir punda fyrir Engels.
Uppfærsla 2: Celtic hafnaði tilboðinu. Forest er að undirbúa nýtt tilboð, félagið er talið vera tilbúið að bjóða allt að 20 milljónir fyrir leikmanninn.
30.01.2026 18:33
Forest að landa ítölskum landsliðsmanni frá Inter
Athugasemdir





