Óvissa hefur verið um framtíð Liam Rosenior hjá Chelsea eftir slakt gengi liðsins undanfarið, en félagið hefur tekið afstöðu núna.
Samkvæmt enskum miðlum stendur stjórn Chelsea áfram við bakið á Rosenior og hefur ekki í hyggju að reka hann í bráð.
Samkvæmt enskum miðlum stendur stjórn Chelsea áfram við bakið á Rosenior og hefur ekki í hyggju að reka hann í bráð.
Þrátt fyrir þrýsting frá stuðningsmönnum eftir slæmt gengi, þar á meðal stórt tap gegn PSG í Meistaradeildinni, ætla eigendur félagsins ekki að grípa til skyndiákvarðana.
Mirror segir að Chelsea ætli ekki að reka Rosenior í sumar jafnvel þótt Chelsea nái ekki Meistaradeildarsæti.
Chelsea telur sig ekki geta tekið ákvörðun um Rosenior fyrr en hann er búinn að fá að minnsta kosti 70 leiki við stjórnvölinn. Hann er núna búinn að stýra liðinu í 17 leikjum eftir að hafa tekið við í janúar síðastliðnum.
Athugasemdir


