Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
banner
   fim 26. mars 2026 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gattuso vildi ekki spila á San Siro
Gennaro Gattuso.
Gennaro Gattuso.
Mynd: EPA
Gennaro Gattuso, landsliðsþjálfari Ítalíu, átti glæstan feril með AC Milan þar sem hann lék heimaleikina á San Siro. Hann kaus hins vegar að spila mikilvægna umspilsleik hjá ítalska landsliðinu fjarri þeim velli.

Gattuso ákvað að færa mikilvægan umspilsleik Ítalíu gegn Norður-Írlandi frá San Siro þar sem hann óttaðist að stuðningsmenn þar myndu baula.

Fjórfaldir heimsmeistarar Ítalíu hafa ekki komist á síðustu tvö heimsmeistaramót, sem hefur aukið pressuna fyrir umspilið.

Gattuso ákvað því að færa undanúrslitaleikinn frá hinum sögufræga San Siro í Mílanó yfir á minni völl í Bergamo til að minnka spennuna. Leikurinn mun fara fram á heimavelli Atalanta þar sem Gattuso býst við að stuðningsmennirnir séu ekki alveg eins kröfuharðir.

„Ég valdi völlinn. Ég tel að þegar þú ferð á stað eins og San Siro séu þar stuðningsmenn Inter og Milan, og þeir gætu byrjað að baula eftir nokkrar misheppnaðar sendingar. Að spila á minni velli mun líklega skapa betra andrúmsloft," segir Gattuso.

Leikur Ítalíu og Norður-Írlands fer fram í kvöld.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner