Einn leikur er á dagskrá í Lengjubikar karla í dag en Njarðvíkingar taka á móti ÍR í Nettóhöllinni klukkan 15:00.
ÍR-ingar gerðu flotta hluti í Reykjavíkurmótinu á dögunum en liðið vann tvo, gerði eitt jafntefli og tapaði einum í A-riðli. Það hafnaði í öðru sæti riðilsins.
Njarðvík spilaði í Þungavigtarbikarnum þar sem liðið vann einn og tapaði einum.
Liðin eigast við í riðli 3 í A-deildinni en þetta er fyrsti leikur beggja liða í keppninni. Þau mættust tvisvar í Lengjudeildinni á síðasta ári og lauk þeim báðum með jafntefli.
Leikur dagsins:
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 3
15:00 Njarðvík-ÍR (Nettóhöllin)
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 3
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|
Athugasemdir


