Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   sun 01. febrúar 2026 20:02
Ívan Guðjón Baldursson
Matt O'Riley snýr aftur til Brighton
Mynd: EPA
Brighton og Marseille hafa náð samkomulagi um miðjumanninn Matt O'Riley sem heldur aftur til Englands eftir lánsdvöl í Frakklandi.

O'Riley vann sér ekki inn byrjunarliðssæti hjá Marseille en kom oft við sögu af bekknum. Franska félagið datt úr leik í Meistaradeild Evrópu á dögunum og þarf því að losa sig við nokkra leikmenn þar sem ekki er nægur spiltími framundan fyrir alla.

O'Riley var hjá Marseille á lánssamningi út tímabilið en nú er staðan orðin þannig að Brighton vantar miðjumann á meðan Marseille er með alltof marga eftir að hafa krækt í Quinten Timber og Ethan Nwaneri í janúarglugganum.

O'Riley er 25 ára hálfur-Dani og hálfur-Englendingur sem er ennþá með þrjú og hálft ár eftir af samningi sínum við Brighton. Hann var keyptur til félagsins úr röðum Celtic sumarið 2024 fyrir 25 milljónir punda og hefur spilað 25 keppnisleiki á tíma sínum á Englandi.

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 24 16 5 3 46 17 +29 53
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 24 14 4 6 35 26 +9 46
4 Man Utd 24 11 8 5 44 36 +8 41
5 Chelsea 24 11 7 6 42 27 +15 40
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Brentford 24 11 3 10 36 32 +4 36
8 Fulham 24 10 4 10 34 35 -1 34
9 Everton 24 9 7 8 26 27 -1 34
10 Newcastle 24 9 6 9 33 33 0 33
11 Sunderland 23 8 9 6 24 26 -2 33
12 Bournemouth 24 8 9 7 40 43 -3 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 24 7 8 9 35 33 +2 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 24 6 8 10 31 42 -11 26
17 Nott. Forest 24 7 5 12 24 35 -11 26
18 West Ham 24 5 5 14 29 48 -19 20
19 Burnley 23 3 6 14 25 44 -19 15
20 Wolves 24 1 5 18 15 45 -30 8
Athugasemdir
banner
banner