Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
banner
   sun 01. febrúar 2026 15:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Ótrúleg dramatík á Bernabeu - Bellingham fór sárþjáður af velli
Mynd: EPA
Real Madrid 2 - 1 Rayo Vallecano
1-0 Vinicius Junior ('15 )
1-1 Jorge De Frutos Sebastian ('49 )
2-1 Kylian Mbappe ('90 , víti)
Rautt spjald: ,Pathe Ciss, Rayo Vallecano ('80)Pep Chavarria, Rayo Vallecano ('90)

Real Madrid vann dramatískan sigur á Rayo Vallecano í dag. Real Madrid varð fyrir áfalli snemma leiks þegar Jude Bellingham meiddist aftan í læri og þurfti að fara fa velli. Hann virtist sárþjáður og svekktur en hann táraðist þegar hann gekk af velli.

Brahim Diaz kom inn á í hans stað og Vinicius Junior kom Real Madrid yfir stuttu síðar eftir undirbúning Diaz.

Rayo Vallecano náði að jafna metin snemma í seinni hálfleik. Kylian Mbappe hefði átt að koma Real aftur fyrir þegar hann slapp einn í gegn, markvörður Rayo fór í úthlaup og Mbappe lék á hann en skaut í slána á opið markið.

Real Madrid lék manni fleiri síðustu tíu mínúturnar þegar Pathe Ciss var rekinn af velli fyrir ljótt brot á Dani Ceballos.

Það stefndi í jafntefli en Real Madrid fékk vítaspyrnu í blálokin og Mbappe skoraði og tryggði Real stigin þrjú. Pep Chavarria, varnarmaður Rayo, fékk síðan sitt annað gula spjald og þar með rautt í blálokin en þá voru úrslitin ráðin.

Real er í 2. sæti með 54 stig, stigi á eftir toppliði Barcelona. Rayo er í 17. sæti með 22 stig, stigi frá fallsæti.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 22 18 1 3 60 23 +37 55
2 Real Madrid 22 17 3 2 47 18 +29 54
3 Atletico Madrid 22 13 6 3 38 17 +21 45
4 Villarreal 21 13 3 5 39 23 +16 42
5 Espanyol 22 10 4 8 26 27 -1 34
6 Betis 21 8 8 5 34 27 +7 32
7 Celta 21 8 8 5 29 23 +6 32
8 Real Sociedad 21 7 6 8 29 29 0 27
9 Osasuna 22 7 5 10 26 27 -1 26
10 Alaves 22 7 4 11 20 27 -7 25
11 Girona 22 6 7 9 21 36 -15 25
12 Elche 22 5 9 8 30 32 -2 24
13 Sevilla 21 7 3 11 28 33 -5 24
14 Athletic 21 7 3 11 20 30 -10 24
15 Valencia 21 5 8 8 22 33 -11 23
16 Getafe 21 6 4 11 16 27 -11 22
17 Vallecano 22 5 7 10 18 30 -12 22
18 Mallorca 21 5 6 10 24 33 -9 21
19 Levante 21 4 6 11 24 34 -10 18
20 Oviedo 22 3 7 12 12 34 -22 16
Athugasemdir
banner