Kyle Walker-Peters leikur fyrir West Ham í dag og gætu fyrrum liðsfélagarnir því mæst í fallbaráttuslag í apríl.
Botnlið ensku úrvalsdeildarinnar Wolves er að missa Jörgen Strand Larsen til Crystal Palace og þarf að kaupa mann til að fylla í skarðið í sóknarlínunni.
Úlfarnir hafa verið orðaðir við Ché Adams hjá Torino en Sky Sports segir að þeir ætli að festa kaup á Adam Armstrong úr röðum Southampton í Championship deildinni.
Sky segir að Wolves sé búið að leggja fram tilboð sem Southampton mun að öllum líkindum samþykkja.
Armstrong er 28 ára gamall og er kominn með 11 mörk og 4 stoðsendingar í 29 leikjum í Championship deildinni á tímabilinu. Hann er sagður spenntur fyrir því að snúa aftur í úrvalsdeildina.
Wolves borgar 7 milljónir punda til að kaupa Armstrong með 2 auka milljónir í árangurstengdar aukagreiðslur.
Armstrong, sem var mikilvægur hlekkur upp yngri landslið Englands þar sem hann skoraði 31 mark í 54 leikjum, er aðeins með eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við Southampton.
Armstrong hefur skorað 6 mörk og gefið 7 stoðsendingar í 88 úrvalsdeildarleikjum á ferlinum. Hann lék þá flesta fyrir Southampton en er einnig með leiki að baki fyrir uppeldisfélagið Newcastle.
01.02.2026 13:52
Wolves samþykkir tilboð Palace í Strand Larsen
Athugasemdir




