Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 15:55
Brynjar Ingi Erluson
Besta deildin: Endurkomusigur hjá KR
Atli Hrafn Andrason kom að jöfnunarmarki KR og gerði síðan sigurmarkið undir lok leiks
Atli Hrafn Andrason kom að jöfnunarmarki KR og gerði síðan sigurmarkið undir lok leiks
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daði Berg skoraði eina mark Vestra og kom boltanum aftur í netið seinna í leiknum en var dæmdur rangstæður
Daði Berg skoraði eina mark Vestra og kom boltanum aftur í netið seinna í leiknum en var dæmdur rangstæður
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR 2 - 1 Vestri
0-1 Daði Berg Jónsson ('41 )
1-1 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('76 )
2-1 Atli Hrafn Andrason ('87 )
Lestu um leikinn

KR vann frábæran 2-1 endurkomusigur á Vestra í 10. umferð Bestu deildar karla á AVIS-vellinum í Laugardal í dag.

Það var nokkuð rólegt, svona að stærstum hluta til, í fyrri hálfleiknum,

Lítið af færum framan af en undir lok fyrri hálfleiks tókst gestunum í Vestra að taka forystuna. Thibang Phete kom boltanum inn fyrir á Daða Berg Jónsson sem kom sér fram hjá Halldór Snæ Georgssyni og skoraði.

Þungt högg fyrir KR-inga svona skömmu fyrir hálfleik. Vestra-menn beittu öguðum varnarleik í byrjun síðari hálfleiks á meðan varnarleikur KR-inga var ekki alveg á sömu bandvídd.

Vestri fékk færin til að gera út um leikinn og tókst Daða Berg að koma boltanum aftur í netið þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka en rangstaða dæmd.

„Sjónvarpsendursýningar sýna að um rangan dóm hafi verið að ræða en Aron Þórður spilaði Daða rétt stæðan. Gæti þetta orðið dýrt fyrir Vestra?“ sagði Anton Freyr Jónsson í textalýsingu sinni á Fótbolta.net.

Stuttu síðar jafnaði Eiður Gauti Sæbjörnsson fyrir KR-inga. Atli Hrafn Andrason átti skot sem Guy Smit varði út á Eið Gauta sem skoraði.

Á 80. mínútu vildu KR-ingar fá víti þegar boltinn virtist fara í höndina á Morten Ohlsen, en ekkert dæmt. VAR hefði komið að góðum notum í þessum leik.

KR-ingar héldu áfram að hóta og kom sigurmarkið fyrir rest er Atli Hrafn stangaði fyrirgjöf nafna síns, Atla Sigurjónssonar, í netið. Endurkoman fullkomnuð.

Uppbótartíminn var fjórar mínútur en hvorugu liðinu tókst að skora á þeim kafla og lauk leiknum með 2-1 sigri KR-inga sem fara upp í 5. sæti með 13 stig en Vestri áfram í öðru sæti með 16 stig, fjórum stigum frá toppnum.
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 6 2 2 19 - 11 +8 20
2.    Breiðablik 10 6 1 3 17 - 16 +1 19
3.    Valur 10 5 3 2 22 - 13 +9 18
4.    Vestri 10 5 1 4 12 - 7 +5 16
5.    Stjarnan 10 4 2 4 17 - 18 -1 14
6.    ÍBV 10 4 2 4 12 - 15 -3 14
7.    KR 10 3 4 3 28 - 23 +5 13
8.    Fram 10 4 0 6 16 - 17 -1 12
9.    KA 10 3 3 4 10 - 17 -7 12
10.    FH 10 3 2 5 15 - 14 +1 11
11.    Afturelding 10 3 2 5 8 - 13 -5 11
12.    ÍA 10 3 0 7 12 - 24 -12 9
Athugasemdir
banner