Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   sun 01. júní 2025 17:10
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið FH og Aftureldingar: Björn Daníel á bekknum
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH mætir Aftureldingu í 10. umferð Bestu deildarinnar en leikurinn hefst klukkan 18.

FH situr í 10. sæti Bestu deildar karla með 10 stig og hafa fagnað góðu gengi á heimavelli í byrjun móts en þeir hafa ekki enn tapað í Kaplakrika.

Nýliðarnir úr Mosfellsbæ sitja í 11. sæti Bestu deildarinnar með jafnmörg stig og FH. Þeir geta einnig slitið sig frá botninum með sigri í dag. Hins vegar hafa þeir tapað seinustu tveimur leikjum gegn KA og Val.

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, gerir þrjár breytingar á sínu liði frá leiknum í Eyjum. Birkir Valur Jónsson, Björn Daníel Sverrisson og Grétar Snær Gunnarsson setjast á bekkinn. Inn í liðið koma Arngrímur Bjartur Guðmundsson, Dagur Örn Fjeldsted og Jóhann Ægir Arnarsson.

Lestu um leikinn: FH 0 -  0 Afturelding

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, gerir einungis eina breytingu á sínu liði. Aron Jóhannsson kemur aftur inn í liðið fyrir Sævar Atla Hugason.

Byrjunarlið FH:
13. Mathias Rosenörn (m)
4. Ahmad Faqa
7. Kjartan Kári Halldórsson
9. Sigurður Bjartur Hallsson
17. Dagur Örn Fjeldsted
21. Böðvar Böðvarsson
23. Tómas Orri Róbertsson
27. Jóhann Ægir Arnarsson
33. Úlfur Ágúst Björnsson
37. Baldur Kári Helgason
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson

Byrjunarlið Afturelding:
1. Jökull Andrésson (m)
0. Sigurpáll Melberg Pálsson
0. Elmar Kári Enesson Cogic
2. Gunnar Bergmann Sigmarsson
3. Axel Óskar Andrésson
6. Aron Elí Sævarsson (f)
7. Aron Jóhannsson
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
20. Benjamin Stokke
30. Oliver Sigurjónsson
77. Hrannar Snær Magnússon
Slapp
Athugasemdir
banner