
Arne Slot tók við Liverpool af goðsögninni Jurgen Klopp og gerði Liverpool að Englandsmeistara á sínu fyrsta tímabili við stjórnvölinn.
„Sú mynd sem við höfum af honum er þannig að hann er fullkominn fyrir Brann og Bergen, sem bæði manneskja og sem þjálfari," segir norski blaðamaðurinn Mads Bøyum í samtali við Fótbolta.net á kaffihúsi í Bergen.
Fréttamaður Fótbolta.net er staddur í Bergen í Noregi þar sem hann hefur fengið að kynnast því hversu vinsæll Freyr er hér í borg þrátt fyrir að hafa aðeins starfað hér í hálft ár. Hann er þjálfari og persóna sem hentar Brann einstaklega vel.
Fréttamaður Fótbolta.net er staddur í Bergen í Noregi þar sem hann hefur fengið að kynnast því hversu vinsæll Freyr er hér í borg þrátt fyrir að hafa aðeins starfað hér í hálft ár. Hann er þjálfari og persóna sem hentar Brann einstaklega vel.
„Það er alveg rosalega mikilvægt í þessari borg og í þessu félagi - mikilvægara en í öllum öðrum borgum og fótboltafélögum í Noregi - að vera karismatísk manneskja og snjall fótboltaþjálfari sem vill sækja til sigurs. Á þessum sviðum er Freyr framúrskarandi," segir Bøyum.
Hér er afskaplega mikilvægt að ná tengingu við stuðningsmenn og spila skemmtilegan fótbolta.
„Við vorum einu sinni með sænskan þjálfara, Rikard Norling, sem var gríðarlega vinsæll. Fólkið hér elskaði hann, stuðningsmennirnir gjörsamlega dýrkuðu hann. Þegar Norling var þjálfari þá féll hann á fyrsta tímabili með liðið, en hann hélt samt sem áður vinnunni sinni og fólk trúði á hann út frá því hvernig hann er sem persóna. Hlutirnir versnuðu reyndar og hann var svo rekinn. Svo var annar þjálfari, Lars Arne Nilsen, sem kom liðinu upp og fór beint upp í annað sæti í úrvalsdeildinni. En fótboltinn var varnarsinnaður og leiðinlegur, og þjálfarinn sagði hluti eins og að hann væri ánægður með eitt stig á útivelli gegn Sogndal sem er lítið félag. Stúkurnar voru ekki fullar og það var ekki stemning," segir Bøyum.
„Það eru ákveðin atriði hér sem skipta meira máli en annars staðar og Freyr er virkilega góður í þessum atriðum. Það mun hjálpa honum mikið og það hefur hjálpað honum mikið nú þegar þar sem hann kom inn eftir tvö mjög árangursrík tímabil. Brann hefði getað orðið meistarar á síðasta tímabili og þeir voru á toppnum tveimur umferðum áður en mótið kláraðist. Það var stórt verkefni að koma inn á eftir Eirik Horneland. En frá því hann lenti á flugvellinum og mætti þar öllum myndavélunum þá hefur hann náð að sjarma sig inn í hjörtu fólks í Bergen. Ég veit það fyrir víst að leiðtogar félagsins og stjórnin voru svo fegin hvernig hann kom inn í þetta; hann mætti á sviðið og eignaði sér það."
Það hefur líka gengið vel að ná í úrslit og Brann er sem stendur í þriðja sæti norsku úrvalsdeildarinnar.
„Varðandi úrslitin þá hefur hann líka staðið sig mjög vel. Þeir gætu verið á toppnum eftir nokkra leiki, ég sé það alveg gerast. Þetta hefur farið fram úr væntingum að mínu mati, betur en nokkur bjóst við."
Vissu ekki mikið um Frey fyrst
Áður en Freyr tók við Brann, þá stýrði hann Lyngby í Danmörku og Kortrijk í Belgíu. Þar áður var hann aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins og aðalþjálfari kvennalandsliðs Íslands ásamt því að vera þjálfari Leiknis og þjálfari kvennaliðs Vals. Það var ekki mikið vitað um hann í Bergen áður en hann barst í tal sem mögulegur næsti þjálfari Brann.
„Við vissum ekki mikið um hann áður en hann tók við starfinu. Það var mitt blað sem sagði fyrst fréttirnar um það að hann væri í viðræðum við Brann og svo að hann myndi taka við. Fyrstu upplýsingarnar sem við fengum voru bara um að það væri íslenskur þjálfari inn í myndinni og við hugsuðum fyrst um Arnar Gunnlaugsson, sem er núna landsliðsþjálfari. En svo fengum við upplýsingar um Frey og fórum að skoða hann," segir Bøyum.
„Það sem okkur var sagt að hann væri frábær gaur með geggjaðan persónuleika, sem hefði náð góðu úrslitum hvert sem hann hefði farið. Það var samt spurning þar sem hann hafði aldrei starfað í Noregi og það eru öðruvísi væntingar hjá Brann en öðrum félögum sem hann hefur starfað hjá; það er búist við því að Brann sé í toppbaráttu. Þetta er öðruvísi verkefni fyrir hann. Við vissum ekki mikið en það sem við lærðum gerði okkur svo sannarlega forvitna frá fyrstu mínútu."
Allir séu heillaðir
Það var flókið fyrir Freysa að koma inn í félagið þar sem hann var að taka við liði sem hafði gert frábæra hluti síðustu árin. Hann var líka að taka við liði af þjálfara sem hafði gert stórkostlega hluti. Sá heitir Eirik Horneland og tók við Saint-Étienne í Frakklandi.
„Ég held að allir sem hafa fylgst með Brann séu heillaðir af Frey," segir Bøyum. „Hann kom inn í frekar sjaldgæfar aðstæður. Vanalega þegar félög skipta um þjálfara, þá er það vegna þess að þjálfarinn hefur staðið sig illa. Hér kemur hann inn og tekur við liði sem hefur eiginlega aldrei verið á betri stað. Það er ákveðin áskorun."
„Á undirbúningstímabilinu eru þeir 'solid' og neita eiginlega að tapa. Ég held að það hafi róað menn og hjálpað til við að fá stuðningsfólk til að trúa á hann. Fyrir okkur fjölmiðlamenn þá kom hann gríðarlega vel fyrir og hann var brosandi, sem er mjög mikilvægt í Bergen. Fótbolti á að vera skemmtilegur og þannig er það hjá honum."
Deildin byrjaði hins vegar ekki vel, með 3-0 tapi gegn Fredrikstad.
„Fyrsta prófið er gegn Fredrikstad og það var held ég sjokk fyrir liðið. Þeir voru vel undirbúnir og ég veit það fyrir víst. Fredrikstad eru frægir fyrir löng innköst og Freyr vissi það. Hann undirbjó liðið fyrir vel en þeir réðu ekki við það. Þetta var martraðarleikur og það fór allt úrskeiðis."
„En fólk í Bergen hafði samt áfram trú á honum. Eitthvað fólk í Osló, sérfræðingar þar, höfðu efasemdir en get alveg sagt það að fólk hér í Bergen hafði trú. Það eru tvö dagblöð hér sem skilja stöðuna betur og dæma ekki út frá einum leik. En ef hann hefði tapað næstu leikjum þar á eftir þá hefði það verið erfitt. Það var stórt verkefni að komast frá þessu en hvað vann hann, sex leiki í röð eftir það? Það var ótrúlega vel gert. Hann átti fullkominn aprílmánuð."
Eins og þegar Slot tók við af Klopp
Svo kemur Bøyum, sem er stuðningsmaður Liverpool, með skemmtilega samlíkingu.
„Þetta er svolítið eins og með Liverpool. Þú ert með Klopp og færð Arne Slot inn. Þetta hélt áfram í svipuðum dúr en það voru ákveðnar áherslubreytingar hér og þar sem gengu vel upp. Hann er búinn að setja sinn stimpil á Brann-liðið, við sjáum það. Heilt yfir hefur það gengið mjög vel. Það er auðvelt að gleyma en hann hefur misst lykilmenn í meiðsli og það hafa verið erfiðleikar á leiðinni. Hann hefur höndlað þá ótrúlega vel. Það hefur ekki allt verið fullkomið, en það hefur gengið mjög vel."
„Mér finnst samanburðurinn við Liverpool ekki svo slæmur. Brann er ekki ríkasta félagið, það er Molde og Rosenborg er eins og Manchester United. Hjá Brann eru samt væntingar, það er hefð og það er alvöru stuðningsmannahópur. Horneland var eins og Klopp, hann náði að lyfta þeim upp og kom með stöðugleika. Svo kemur inn spennandi gaur sem er kannski ekki mjög þekktur. En þú lest þér til um hann og hugsar að þarna sé spennandi þjálfari á ferðinni," segir Bøyum.
Týpur sem passa vel inn hérna
Brann hefur í gegnum tíðina verið mikið Íslendingafélag og Bøyum telur að það hjálpi Frey. Hann hafi getað kynnt sér félagið betur vegna þess. Hann segir einnig að Íslendingar séu týpur sem passi vel inn í Brann.
„Ég held að Íslendingahefðin hér hafi hjálpað Frey og eitt í því er að hann gat spurt fólk út í félagið. Ég veit að hann talaði við Birki Má Sævarsson um félagið og hann gat því skilið það betur. Ég veit að hann undirbýr sig vel og hann hefur gert það áður en hann tók við liðinu. Þegar þú kemur hingað þá ertu ekki bara fótboltaþjálfari. Þú ert með borgina á herðum þér. Það skiptir máli hvernig þú hegðar þér og hvernig þú talar. Þú þarft að skilja fjölmiðlana og allt í kringum félagið. Hann var fljótur að skilja það," segir Bøyum.
„Þegar Brann vann deildina síðast árið 2007 þá voru Ólafur Örn Bjarnason og Kristján Örn Sigurðsson í lykilhlutverkum og Ármann Smári Björnsson var ofurvaramaður. Það er mikil tenging og við kunnum vel við Íslendingana okkar. Teitur Þórðarson var líka þjálfari hér. Íslendingar eru týpur sem passa vel inn hér."
Langar að taka gullið heim
Freyr hefur talað um það að honum langi að taka gullið heim til Bergen og stýra liðinu til sigurs í norsku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn síðan 2007. Telur þú að hann geti gert það?
„Freyr hefur sannað það í gegnum ferilinn að hann afrekar það sem hann vill afreka. Ég held að við verðum að gefa honum tækifæri til að sýna að hann geti gert það hér. Byrjunin á tíma hans hjá Brann er betri en það sem nokkur gat búist við. Þú getur dreymt um það en þetta er betra en það sem hægt var að búast við. Bodö/Glimt hefur byrjað illa þar sem þeir notuðu mikla orku í Evrópukeppnina og það verður áskorun fyrir Frey þegar Brann byrjar í Evrópu. En miðað við það sem hann hefur gert hingað til þá finnurðu ekki neinn í Bergen sem hefur ekki trú á því að hann muni vinna deildina. Það er möguleiki og hann er mögulega maðurinn sem getur náð því."
„Stuðningsmennirnir myndu gjörsamlega elska það ef hann stýrir liðinu til sigurs í deildinni. Þeir elska það þegar þjálfarinn tengir við þá og tekur eftir þeim. Hann gerir það. Í fótbolta í dag eru margir hræddir við að vera hreinskilnir. Fólk elskar hann út af því að hann segir sannleikann og talar hreint út. Bergen elskar ferskan andblær og það er Freyr," sagði Bøyum að lokum.
Í dag er leikdagur í Bergen þar sem Brann tekur á móti Kristiansund. Fótbolti.net er á staðnum og verður með viðtöl eftir leik. Hægt verður að fylgjast með deginum á síðu Fótbolta.net á Instagram.
Athugasemdir