Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Inzaghi: Leit ekki út fyrir að vera mitt lið
Mynd: EPA
Inter steinlá gegn PSG 5-0 í úrslitum Meistaradeildarinnar í gær. Simone Inzaghi, stjóri Inter, var að vonum svekktur.

„Þetta leit ekki út fyrir að vera mitt Inter lið, við erum fyrstir til að viðurkenna það en það dregur ekki úr því að ég er stoltur af strákunum. Við mættum liði sem átti skilið að vinna leikinn og Meistaradeildina og er sennilega betra lið en við," sagði Inzaghi.

Inzaghi hefur verið orðaður við Al-Hilal í Sádí-Arabíu en hann var spurður að því hvort hann yrði áfram stjóri Inter.

„Ég veit ekki hvernig ég á að svara þessu. Ég kom hingað til að tala sem tákn um virðingu og kurteisi eftir þetta sársaukafulla tap,“ sagði Inzaghi.

„Lið verða sterkari eftir töp, Það hljómar eins og klisja en það er sannleikurinn og við höfum áður sýnt það með því að vinna deildina. Það er svekkelsi í kvöld en við verðum að bera höfðið hátt vitandi að við vorum að mæta liði sem átti sigurinn skilið."
Athugasemdir
banner
banner
banner