Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 12:34
Brynjar Ingi Erluson
Man City í viðræðum við Lyon
Mynd: EPA
Manchester City hefur hafið viðræður við Lyon um franska leikmanninn Rayan Cherki en þetta segir Fabrizio Romano á X í dag.

Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformaður Man City, sagði á dögunum að félagið stefndi að því að klára helstu leikmannakaup fyrir HM félagsliða sem hefst eftir tvær vikur.

Félagið er í viðræðum við AC Milan um hollenska miðjumanninn Tijjani Reijnders og segir Romano að nú hafi félagið hafið viðræður við Lyon um Cherki.

Cherki er 21 árs gamall og verið fastamaður í liðinu síðustu ár, en hann mun kosta Man City um það bil 25 milljónir punda.

Leikmaðurinn hefur þegar opinberað það að hann sé á förum í sumar og leiðir Man City kapphlaupið.

Romano er að búast við því að viðræðurnar muni ganga hratt fyrir sig.

Cherki skoraði 12 mörk og gaf 20 stoðsendingar í öllum keppnum með Lyon á leiktíðinni.

Hann á að baki 33 leiki og 15 mörk með yngri landsliðum Frakklands en á enn eftir að þreyta frumraun sína með A-landsliðinu.
Athugasemdir
banner