Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 18:35
Elvar Geir Magnússon
Tilfinningaríkt myndband FH - „Skildir sporin eftir í hjörtum okkar“
Mynd: FH
Nú stendur yfir leikur FH og Aftureldingar í Bestu deild karla en FH-ingar leika í nýjum ljósbláum treyjum þar sem um er að ræða sérstakan styrktarleik.

„Sá fagurblái er mættur. Í ár stöndum við saman með Gleym mér ei styrktarfélag. Lestur: Ebba Katrín Finnsdóttir. Lag: Friðrik Dór" segir á heimasvæði FH á Facebook þar sem frumsýnt er myndband sem sjá má hér að neðan.

Gleym mér ei styrktarfélag er til staðar fyrir þau sem missa á meðgöngu og í/eftir fæðingu. FH-ingar hafa á hverju ári lagt góðum málefnum lið og gefið út sérstakar styrktartreyjur. Treyjan í ár er fagurblá og glæsileg.


Athugasemdir
banner
banner