Tottenham er alvarlega að íhuga það að reka ástralska stjórann Ange Postecoglou úr starfi, aðeins nokkrum dögum eftir að hafa unnið Evrópudeildina og komið liðinu í Meistaradeild Evrópu fyrir næstu leiktíð.
Postecoglou tók við Tottenham árið 2023 og hafnaði liðið i 5. sæti á fyrsta tímabili hans.
Þetta tímabil var töluvert verra ef horft er á deildina en liðið hafnaði í 17. sæti, einu fyrir ofan fallsæti, en það sem bjargaði Tottenham var það hversu léleg neðstu þrjú liðinu voru á tímabilinu.
Tottenham, eins og Manchester United, settu alla einbeitingu á að vinna Evrópudeildina enda var það eini möguleiki þeirra á að komast í Meistaradeildina, en þar hafði Tottenham betur, 1-0, í úrslitaleiknum.
Um leið var þetta fyrsti titill Tottenham síðan 2008, en samkvæmt blaðamanninum Sacha Tavolieri virðist það ekki vera nóg til að halda starfinu.
Daniel Levy, stjórnarformaður og eigandi Tottenham, er alvarlega að íhuga það að reka Postecoglou, en stjórnin er að gera frammistöðumat á stjóranum og mun síðan tilkynna um ákvörðun sína á næstu dögum.
Football Insider heldur því fram að það sé þegar búið að taka ákvörðun um að reka hann og að leit að nýjum stjóra sé hafin.
Thomas Frank, stjóri Brentford, hefur verið orðaður við starfið ásamt Marco Silva.
Athugasemdir