Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 16:30
Brynjar Ingi Erluson
Zidane hafnar risatilboði frá Sádi-Arabíu
Mynd: EPA
Franska goðsögnin Zinedine Zidane hefur hafnað 100 milljóna evra samningstilboði frá Sádi-Arabíu. L'Equipe greinir frá.

Mörg félög ög fótboltasambönd hafa ítrekað reynt að fá Zidane aftur í þjálfun síðan hann hætti með Real Madrid í seinna skiptið árið 2021 en ekkert gengur.

L'Equipe segir Zidane hafa fengið spennandi samningstilboð frá Sádi-Arabíu á dögunum sem flestir gætu ekki hafnað, en Zidane gerði það.

Honum var boðið 100 milljónir evra fyrir tólf mánuði hjá ónefndu félagi í Sádi-Arabíu.

Svar Zidane var hins vegar skýrt: „Franska landsliðið eða ekkert.“ .

Það er ekkert leyndarmál að Zidane hefur haft auga á landsliðsþjálfarastöðunni hjá Frakklandi í mörg ár og hefur hann beðið þolinmóður eftir því að Didier Deschamps, fyrrum liðsfélagi hans hjá Juventus og franska landsliðinu, hætti þjálfun þess.

Deschamps tilkynnti í byrjun árs að HM 2026 yrði hans síðasta mót með landsliðið og vill Zidane ekki að neitt annað trufli sig næsta árið á meðan hann undirbýr sig fyrir starfið.

Þó það sé auðvitað ekkert öruggt að Zidane taki við þá kæmi það alla vega verulega á óvart ef franska fótboltasambandið myndi ráða einhvern annan í starfið.
Athugasemdir
banner