Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 01. október 2020 18:13
Magnús Már Einarsson
Marseille vill fá Guendouzi
Mynd: Getty Images
Marseille hefur áhuga á að fá Matteo Guendouzi miðjumann Arsenal samkvæmt frétt Sky Sports.

Hinn 21 árs gamli Guendouzi hefur ekkert komið við sögu hjá Arsenal á þessu tímabili.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var ósáttur við hegðun leikmannsins á síðasta tímabili.

Marseille hefur áhuga á að fá Guendouzi á láni út komandi tímabil en félagaskiptaglugginn lokar á mánudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner