Brasilíska félagið Botafogo hefur hafnað tilboði Fiorentina í brasilíska leikmanninn Luiz Henrique. Þetta segir Fabrizio Romano á X.
Henrique er 23 ára gamall vængmaður sem hefur spilað stærstan hluta ferilsins í Brasilíu.
Hann hóf meistaraflokksferil sinn með Fluminense en ákvað að reyna fyrir sér í Evrópuboltanum árið 2022 og samdi við Real Betis á Spáni.
Það ævintýri entist í eitt og hálft. Henrique spilaði 64 leiki og skoraði aðeins 4 mörk áður en hann snéri aftur til Brasilíu. Botafogo keypti hann fyrir metfé fyrir ári síðan sem reyndist alger happafengur því hann var besti maður liðsins er það vann Meistaradeild Suður-Ameríku (Copa Libertadores) og valinn maður úrslitaleiksins.
Félög í Evrópu eru áhugasöm um hann og trúa að hann geti orðið frábær í þessari álfu og þá helst ítalska félagið Fiorentina sem lagði fram tilboð í kappann á dögunum en því tilboði var hafnað.
Nákvæm upphæð tilboðsins kemur ekki fram en þó töluvert lægra en uppsett verð sem er í kringum 30 milljónir evra.
Athugasemdir



