Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
banner
   mán 02. febrúar 2026 17:51
Brynjar Ingi Erluson
Forest að fá Netz frá Gladbach
Mynd: EPA
Þýska félagið Borussia Mönchengladbach hefur samþykkt 2 milljóna punda tilboð Nottingham Forest í þýska bakvörðinn Luca Netz.

Netz er 22 ára gamall og að renna út á samningi í lok tímabils.

Gladbach vildi alls ekki missa hann á frjálsri sölu og hefur nú samþykkt að leyfa honum að fara til Forest fyrir 2 milljónir punda.

Sky Sports segir samkomulag í höfn og er búist við því að það náist að ganga frá félagaskiptunum fyrir gluggalok.

Forest hefur verið í leit að nýjum vinstri bakverði síðasta sólarhringinn eftir að félagið missti Oleksandr Zinchenko sem fór til Ajax.

Netz á 40 landsleiki að baki með yngri landsliðum Þýskalands og var fyrir nokkrum árum talinn einn allra efnilegasti bakvörður Þjóðverja.
Athugasemdir
banner
banner