Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   mán 02. febrúar 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gætu skipt á Kanté og En-Nesyri - Ronaldo í leyfi
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fenerbahce og Al-Ittihad eru í viðræðum um leikmannaskipti þar sem tyrkneska stórveldið hefur áhuga á miðjumanninum þaulreynda N'Golo Kanté á meðan meistararnir í Sádi-Arabíu vilja fá Youssef En-Nesyri í sínar raðir.

Fenerbahce hefur verið að vinna að félagaskiptum fyrir Kanté undanfarnar vikur þrátt fyrir að Frakkinn eigi 35 ára afmæli í mars, en hann hefur verið að gera flotta hluti í arabísku deildinni þar sem hann á þó aðeins hálft ár eftir af samningi.

Youssef En-Nesyri myndi fara hina leiðina og skipta yfir til Al-Ittihad þar sem stórveldið er í leit að arftaka fyrir Karim Benzema sem er í verkfalli og gæti verið á förum frá félaginu.

En-Nesyri er 28 ára gamall og hefur verið mikilvægur hlekkur í framlínu Fenerbahce á dvöl sinni í Tyrklandi, en þar áður vann hann Evrópudeildina í tvígang með Sevilla.

En-Nesyri er ekki að eiga sitt besta tímabil sem stendur þar sem hann er búinn að skora 8 mörk í 26 leikjum í öllum keppnum. Til samanburðar setti hann 30 mörk í 52 leikjum á síðustu leiktíð, auk þess að gefa 7 stoðsendingar.

Juventus er meðal félaga sem vildi fá En-Nesyri í janúarglugganum en leikmaðurinn neitaði að yfirgefa Fenerbahce á lánssamningi.

Annars er það að frétta frá Sádi-Arabíu að Cristiano Ronaldo verður ekki með Al-Nassr gegn Al-Riyadh í dag. Hann er ekki meiddur og ekki hvíldur heldur hefur hann líklegast þurft að biðja um leyfi til að sinna persónulegum erindum.
Athugasemdir
banner
banner