Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 í kvöld. Fréttamenn Fótbolta.net standa vaktina langt fram á kvöld og fær ykkur allar nýjustu fréttir. Hér er slúðurpakki dagsins.
Juventus hefur sent Everton fyrirspurn vegna sóknarmannsins Beto (28). Everton er hikandi við að selja hann þar sem félagið er ekki með marga kosti í fremstu víglínu. (Talksport)
Juventus er nálægt því að fá enska sóknarmanninn Justin Oboavwoduo (19) frá Manchester City. (Sky Sports Italia)
Miðjumaðurinn Angel Gomes (25) er á leið aftur til Englands en hann verður lánaður frá Marseille til Wolves. (BBC)
Norski framherjinn Jörgen Strand Larsen (25) verður að öllum líkindum keyptur frá Wolves til Crystal Palace í dag. Palace mun þá selja Jean-Philippe Mateta (28) til AC Milan. Mateta vill yfirgefa Selhurst Park. (BBC)
Liverpool hafði áhuga á að fá Lutsharel Geertruida (25), hinn fjölhæfa leikmann Sunderland, en ljóst er að hann fer ekki á Anfield í þessum glugga. Hann lék undir stjórn Arne Slot hjá Feyenoord. (Mail)
Chelsea hefur samþykkt að lána Tyrique George (19) til Everton út tímabilið. Everton mun fá klásúlu um að geta keypt sóknarmanninn unga, hann getur leikið á báðum köntum og hefur einnig verið notaður sem fremsti maður. (Mail)
Tottenham Leeds og Sunderland eru með augastað á brasilíska framherjanum Endrick (19) hjá Real Madrid en hann hefur spilað vel á láni hjá Lyon. (Fichajes)
Manchester United mun ekki geta komið í veg fyrir að Marcus Rashford (28) verði áfram hjá Barcelona ef spænska félagið býður 26 milljónir punda í hann. Klásúla þess efnis er í lánssamningnum. (Mundo Deportivo)
Nottingham Forest er farið að skoða aðra möguleika þar sem ólíklegt er að félaginu takist að landa ítalska miðjumanninum Davide Frattesi (26) frá Inter. (Sky Sports)
Celtic hefur hafnað 14 milljóna punda tilboði Nottingham Forest í belgíska miðjumanninn Arne Engels (22). (Mail)
Liverpool hefur áhuga á hollenska vængbakverðinum Denzel Dumfries (19) hjá inter. (Fabrizio Romano)
Dominik Szoboszlai (25) segir að framtíð sín sé ekki í sínu höndum en í gangi eru viðræður við Liverpool um nýjan samning. (Athletic)
Chelsea fylgist með franska varnarmanninum Tylel Tati (18) hjá Nantes. (L'Equipe)
Leicester City og Birmingham City eru tvö af sex Championship-félögum sem hafa haft samband við Newcastle vegna varnarmannsins Jamaal Lascelles (32). (Sky Sports)
Brighton er í viðræðum við Marseille um að endurheimta danska miðjumanninn Matt O'Riley (25) úr láni. (Athletic)
Fulham gæti fengið tilboð frá Aston Villa eða Everton í Harry Wilson (28). Samningur hans rennur út í sumar. (BBC)
Athugasemdir


