Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 10:19
Elvar Geir Magnússon
Pepi ekki til Fulham í dag - Félagið reynir aftur í sumar
Mynd: EPA
Ekki er búist við því að Ricardo Pepi gangi í raðir Fulham í dag en félagið hefur mikinn áhuga á bandaríska sóknarmanninum.

Pepi, sem er 23 ára, var tilbúinn að fara til Fulham sem var tilbúið að borga yfir 30 milljónir punda til að klára skiptin.

Hollenskir fjölmiðlar segja hinsvegar að félagslið hans, PSV Eindhoven, sé ekki tilbúið að selja leikmanninn nema það tryggi sér mann til að fylla hans skarð.

BBC segir að hvorki Fulham né Pepi reikni með því að málin verði frágengin fyrir gluggalok klukkan 19 í kvöld. Fulham muni hinsvegar reyna aftur við Pepi í næsta glugga en samningur helsta sóknarmanns liðsins, Raul Jimenez, rennur út eftir tímabilið.

Fulham hefur keypt vængmanninn Oscar Bobb frá Manchester City í þessum glugga.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 24 16 5 3 46 17 +29 53
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 24 14 4 6 35 26 +9 46
4 Man Utd 24 11 8 5 44 36 +8 41
5 Chelsea 24 11 7 6 42 27 +15 40
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Brentford 24 11 3 10 36 32 +4 36
8 Fulham 24 10 4 10 34 35 -1 34
9 Everton 24 9 7 8 26 27 -1 34
10 Newcastle 24 9 6 9 33 33 0 33
11 Sunderland 23 8 9 6 24 26 -2 33
12 Bournemouth 24 8 9 7 40 43 -3 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 24 7 8 9 35 33 +2 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 24 6 8 10 31 42 -11 26
17 Nott. Forest 24 7 5 12 24 35 -11 26
18 West Ham 24 5 5 14 29 48 -19 20
19 Burnley 23 3 6 14 25 44 -19 15
20 Wolves 24 1 5 18 15 45 -30 8
Athugasemdir
banner
banner