Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 09:11
Elvar Geir Magnússon
Rólegur dagur hjá Man Utd
Omar Berrada og Sir Jim Ratcliffe stýra málum hjá Man Utd.
Omar Berrada og Sir Jim Ratcliffe stýra málum hjá Man Utd.
Mynd: EPA
Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Manchester United, sagði á föstudag að það væri ekki hægt að útiloka neitt á gluggadeginum. Það er hinsvegar útlit fyrir mjög rólegan dag á Old Trafford.

Simon Stone, fréttamaður BBC sem sérhæfir sig í fréttum varðandi Manchester United, segir að allt sé með kyrrum kjörum.

Sóknarmaðurinn tvítugi Ethan Wheatley muni fara til Bradford og miðjumaðurinn nítján ára gamli James Scanlon vera lánaður. Ekki sé búist við öðrum hreyfingum hjá United.

„Ef Rúben Amorim væri enn með stjórnartaumana værum við örugglega að ræða um Kobbie Mainoo og hans framtíð. En Mainoo er að spila og gera vel undir stjórn Michael Carrick," segir Stone.

Framtíð Joshua Zirkzee og Manuel Ugarte hefur verið í umræðunni. Casemiro hefur verið að spila vel og þörfin fyrir að fá inn miðjumann sé ekki eins mikil og talið var.

Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 í kvöld.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 24 16 5 3 46 17 +29 53
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 24 14 4 6 35 26 +9 46
4 Man Utd 24 11 8 5 44 36 +8 41
5 Chelsea 24 11 7 6 42 27 +15 40
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Brentford 24 11 3 10 36 32 +4 36
8 Fulham 24 10 4 10 34 35 -1 34
9 Everton 24 9 7 8 26 27 -1 34
10 Newcastle 24 9 6 9 33 33 0 33
11 Sunderland 23 8 9 6 24 26 -2 33
12 Bournemouth 24 8 9 7 40 43 -3 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 24 7 8 9 35 33 +2 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 24 6 8 10 31 42 -11 26
17 Nott. Forest 24 7 5 12 24 35 -11 26
18 West Ham 24 5 5 14 29 48 -19 20
19 Burnley 23 3 6 14 25 44 -19 15
20 Wolves 24 1 5 18 15 45 -30 8
Athugasemdir
banner
banner