Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 16:46
Elvar Geir Magnússon
Ter Stegen aftur meiddur og HM í hættu
Marc-André ter Stegen er 33 ára.
Marc-André ter Stegen er 33 ára.
Mynd: EPA
Markvörðurinn Marc-Andre ter Stegen hefur átt erfitt tímabil og er nú aftur kominn á meiðslalistann. Hætta er á að hann fari ekki með þýska landsliðshópnum á HM í sumar.

Ter Stegen fékk þau skilaboð að hann myndi ekki spila ef hann yrði áfram hjá Barcelona og fór hann á lán til Girona í glugganum. Hann hefur byrjað tvo leiki hjá Girona en er nú meiddur aftur.

Ter Stegen missti af fjórum mánuðum vegna aðgerðar í baki og nú er hann meiddur aftan í læri. Cadena SER segir að hann verði frá þar til í apríl.

Sagt er að Ter Stegen gæti snúið aftur til Barcelona ef Girona fær inn nýjan markvörð.

Hann mun þó ekki fá að spila hjá Barcelona þar sem Hansi Flick hefur sagt það skýrt að hann treysti á Joan Garcia og Wojciech Szczesny.

Ter Stegen er meðvitaður um að hann þurfi að spila til að eiga möguleika á byrjunarliðssæti með Þýskalandi á HM. Þá mun hann missa af landsliðsglugganum í mars sem er þungt högg fyrir hann.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 22 18 1 3 60 23 +37 55
2 Real Madrid 22 17 3 2 47 18 +29 54
3 Atletico Madrid 22 13 6 3 38 17 +21 45
4 Villarreal 21 13 3 5 39 23 +16 42
5 Betis 22 9 8 5 36 28 +8 35
6 Espanyol 22 10 4 8 26 27 -1 34
7 Celta 22 8 9 5 29 23 +6 33
8 Real Sociedad 22 7 7 8 30 30 0 28
9 Osasuna 22 7 5 10 26 27 -1 26
10 Alaves 22 7 4 11 20 27 -7 25
11 Athletic 22 7 4 11 21 31 -10 25
12 Girona 22 6 7 9 21 36 -15 25
13 Elche 22 5 9 8 30 32 -2 24
14 Sevilla 21 7 3 11 28 33 -5 24
15 Getafe 22 6 5 11 16 27 -11 23
16 Valencia 22 5 8 9 23 35 -12 23
17 Vallecano 22 5 7 10 18 30 -12 22
18 Mallorca 21 5 6 10 24 33 -9 21
19 Levante 21 4 6 11 24 34 -10 18
20 Oviedo 22 3 7 12 12 34 -22 16
Athugasemdir
banner
banner