Newcastle vill læra af síðasta sumri - Arsenal í baráttu við PSG um leikmann - Man Utd búið að krækja í ungan leikmann
   fös 02. maí 2025 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bruno um Maguire: Þvílíkur vængmaður
Mynd: EPA
Harry Maguire, leikmaður Man Utd, stal flestum fyrirsögnum eftir sigur liðsins gegn Athletic Bilbao í Evrópudeildinni í gær.

Man Utd fór með nokkuð öruggan 3-0 sigur aftur til Englands en varnarmaðurinn Harry Maguire átti tilþrif leiksins.

Hann lék á varnarmann Bilbao áður en hann sendi boltann fyrir og í kjölfarið skoraði Casemiro fyrsta mark leiksins. Bruno Fernandes hrósaði Maguire í leikslok.

„Þvílíkur vængmaður. Ég held að hann hafi ekki einu sinni sjálfur vitað að hann ætti þetta til. Hann er með miklu meira sjálfstraust núna. Hann er að styrkja stöðu sína í liðinu, hann er góður leiðtogi og við vonum að hann haldi áfram að bæta sig," sagði Fernandes.
Athugasemdir
banner