Jobe Bellingham, leikmaður Sunderland, hefur samþykkt að ganga til liðs við Dortmund. Þýski miðillinn Bild greinir frá þessu.
Bellingham þekkir til hjá Dortmund en hann heimsótti oft bróður sinn Jude Bellingham þegar hann var hjá Dortmund áður en hann gekk til liðs við Real Madrid árið 2023.
Bild segir frá því að Sunderland og Dortmund séu í viðræðum. Dortmund er hins vegar aðeins tilbúið að greiða 25 milljónir evra en Sunderland hefur sett 40 milljón evra verðmiða á hann.
Bellingham er 19 ára gamall en hann lék 43 leiki með Sunderland á síðustu leiktíð þegar liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni með sigri á Sheffield United í umspilinu í Championship deildinni.
Athugasemdir