Valur 2 - 1 Fram
1-0 Patrick Pedersen ('50 )
1-1 Vuk Oskar Dimitrijevic ('64 )
2-1 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('68 )
Lestu um leikinn
1-0 Patrick Pedersen ('50 )
1-1 Vuk Oskar Dimitrijevic ('64 )
2-1 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('68 )
Lestu um leikinn
Valur vann þriðja sigurinn í röð í deildinni þegar liðið lagði Fram á Hlíðarenda í kvöld.
Markus Nakkim fékk tækifæri þegar boltinn datt fyrir hann inn á teignum en Guðmundur Magnússon gerði vel að koma sér fyrir skotið.
Eftir hálftíma leik komst Tryggvi Hrafn Haraldsson í gegn eftir sendingu frá Aroni Jóhannssyni en Viktor Freyr Sigurðsson í marki Fram sá við honum.
Vuk Oskar Dimitrijevic var nálægt því að skora undir lok fyrri hálfleiks en skot hans fyrir utan teiginn fór rétt framhjá.
Markahrókurinn Patrick Pedersen braut ísiinn snemma í seinni hálfleik. Hann komst í gegn eftir sendingu frá Bjarna Mark Antonssyni og skoraði framhjá Viktori.
Vuk Oskar jafnaði metin eftir rúmlega klukkutíma leik með laglegu skoti.
Staðan var ekki jöfn lengi því Tryggvi Hrafn Haraldsson kom Val aftur yfir þegar hann vann Óliver Elís Hlynsson í baráttunni um boltann eftir útspark frá Frederik Schram og skoraði.
Tryggvi var nálægt því að bæta öðru marki sínu við stuttu síðar en Viktor varði frábærlega frá honum.
Fleiri mörk urðu ekki skoruð og því gríðarlega sterkur sigur Vals í hús. Liðið er komið í 3. sæti með 18 stig, stigi á eftir Breiðabliki og tveimur stigum á eftir Víkingi. Fram er áfram í 8. sæti með 12 stig.
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 10 | 6 | 2 | 2 | 19 - 11 | +8 | 20 |
2. Breiðablik | 10 | 6 | 1 | 3 | 17 - 16 | +1 | 19 |
3. Valur | 10 | 5 | 3 | 2 | 22 - 13 | +9 | 18 |
4. Vestri | 10 | 5 | 1 | 4 | 12 - 7 | +5 | 16 |
5. Stjarnan | 10 | 4 | 2 | 4 | 17 - 18 | -1 | 14 |
6. ÍBV | 10 | 4 | 2 | 4 | 12 - 15 | -3 | 14 |
7. KR | 10 | 3 | 4 | 3 | 28 - 23 | +5 | 13 |
8. Fram | 10 | 4 | 0 | 6 | 16 - 17 | -1 | 12 |
9. KA | 10 | 3 | 3 | 4 | 10 - 17 | -7 | 12 |
10. FH | 10 | 3 | 2 | 5 | 15 - 14 | +1 | 11 |
11. Afturelding | 10 | 3 | 2 | 5 | 8 - 13 | -5 | 11 |
12. ÍA | 10 | 3 | 0 | 7 | 12 - 24 | -12 | 9 |
Athugasemdir