Höjlund gæti verið lánaður til Inter - Tveir sóknarmenn orðaðir við Man Utd - Wirtz með samkomulag við Liverpool - City færist nær Reijnders
   mán 02. júní 2025 14:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Edda Sif fyrst kvenna kjörin formaður Samtaka íþróttafréttamanna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Edda Sif Pálsdóttir var á aðalfundi Samtaka íþróttafréttamanna í dag kjörin formaður samtakanna. Edda Sif er íþróttafréttakona á RÚV.

Hún brýtur blað í sögu samtakanna, sem eru 69 ára gömul, með því að verða fyrsta konan til að sitja í formannsstólnum.

Hún er kjörin til tveggja ára og tekur við af Tómasi Þór Þóðarsyni sem gekk úr samtökunum eftir að hafa verið formaður undanfarin sex ár.

Val­ur Páll Ei­ríks­son hjá Sýn var á aðal­fund­in­um í dag kjör­inn rit­ari og kem­ur hann nýr inn í stjórn­ina. Þá er Þorkell Gunn­ar Sig­ur­björns­son á RÚV áfram gjald­keri.
Athugasemdir
banner
banner