Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mán 02. júní 2025 22:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enska landsliðið undirbýr sig fyrir hitann á HM
Mynd: EPA
Enska landsliðið nýtir sér upphituð tjöld á æfingum til að undirbúa sig fyrir mögulegar aðstæður á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó á næsta ári.

Liðið er að æfa á Girona á Spáni um þessar mundir en liðið mætiir Andorra í undankeppni HM á laugardainn og mætir síðan Senegal í æfingaleik á heimavelli Nottingham Forest 10. júní.

Leikmenn liðsins munu fara í próf á æfingahjólum inn í tjöldum í hita sem þeir geta búist við á HM og endurheimt þeirra verður skoðuð.

Varað hefur verið við því að hitastig á 14 af 16 leikvöngum sem verða notaðir á HM 2026 gæti farið yfir „hugsanleg hættumörk“ á meðan mótinu stendur.
Slapp
Athugasemdir
banner