Antoine Griezmann hefur skrifað undir nýjan samning við Atletico Madrid og er nú samningsbundinn félaginu næstu tvö árin.
Árið 2027 verður franski sóknarmaðurinn orðinn 36 ára.
Árið 2027 verður franski sóknarmaðurinn orðinn 36 ára.
Griezmann hafði áður gefið það út að hann vildi að Atletico yrði hans síðasta félag í Evrópu.
Hann var orðaður við bandarísku MLS deildina en ákvað að framlengja í Madríd.
Griezmann er uppalinn hjá Real Sociedad og kom fyrst til Atletico árið 2014. Árið 2019 var hann keyptur til Barcelon en sneri aftur til Atletico árið 2021.
30. september í fyrra lagði hann landsliðskóna á hilluna eftir að hafa spilað 137 leiki og skorað 44 mörk. Hann vann HM 2018 og Þjóðadeildina 2021.
Athugasemdir