Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 22:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kristian Nökkvi á skotskónum í bikartapi
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Kristian Nökkvi Hlynsson var á skotskónum þegar Twente féll úr leik í hollenska bikarnum í kvöld.

Liðið heimsótti AZ Alkmaar en heimamenn voru með 1-0 forystu í hálfleik. Kristian jafnaði metin þegar hann mætti af krafti á fjærstöngina eftir fyrirgjöf frá Sondre Orjasaeter.

Kristian var tekinn af velli í uppbótatíma. Staðan var jöfn eftir 90 mínútur og þurfti því að framlengja. Þar hafði AZ betur en írski landsliðsmaðurinn Troy Parrott skoraði sigurmarkið snemma í framlengingunni. 2-1 lokatölur.

Logi Tómasson kom ekkert við sögu þegar Samsunspor vann 2-0 gegn Bodrumspor í þriðju umferð i riðlakeppni í tyrkneska bikarnum. Samsunspor er með fullt hús stiga og er því í góðum málum.

Helgi fróði Ingason kom ekki við sögu í 3-0 tapi Helmond gegn Dordrecht í næst efstu deild í Hollandi. Helmond er í 18. sæti með 25 stig eftir 25 umferðir.

Gísli Gottskálk Þórðarson var ónotaður varamaður í 1-0 tapi Lech Poznan gegn Piast Gliwice í pólsku deildinni. Lech Poznan er í 9. sæti með 26 stig eftir 19 umferðir.

Tómas Bent Magnússon kom inn á sem varamaður þegar Hearts tapaði 1-0 gegn St. Mirren í skosku deildinni. Hearts var manni færri frá 30. mínútu en eina mark leiksins kom ekki fyrr en á 88. mínútu. Hearts er áfram á toppnum með sex stiga forystu á Celtic og Rangers sem eiga leik til góða.
Athugasemdir
banner