Troy Deeney, sérfræðingur BBC, hefur valið úrvalslið 24. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar.
Manchester United vann dramatískan sigur gegn Fulham, Manchester City gerði 2-2 jafntefli við Tottenham eftir að hafa komist tveimur mörkum yfir, Liverpool slátraði Newcastle, Aston Villa tapaði fyrir Brentford og Arsenal er með sex stiga forystu eftir 4-0 útisigur gegn Leeds.
Manchester United vann dramatískan sigur gegn Fulham, Manchester City gerði 2-2 jafntefli við Tottenham eftir að hafa komist tveimur mörkum yfir, Liverpool slátraði Newcastle, Aston Villa tapaði fyrir Brentford og Arsenal er með sex stiga forystu eftir 4-0 útisigur gegn Leeds.
Markvörður: Caoimhin Kelleher (Brentford) - Hefur verið frábær fyrir Brentford síðan hann kom frá Liverpool. Hélt markinu hreinu í sigri gegn Aston Villa, þó Brentford hafi leikið tíu gegn ellefu stærstan hluta leiksins.
Varnarmaður: Marcos Senesi (Bournemouth) - Verið einn besti leikmaður tímabilsins. Bournemouth vann Úlfana örugglega.
Varnarmaður: Kristoffer Ajer (Brentford) - Þessi hávaxni leikmaður fagnaði hverri tæklingu gegn Villa.
Miðjumaður: Enzo Fernandez (Chelsea) - Skoraði markið sem fullkomnaði endurkomusigur Chelsea gegn West Ham. Frábær leikmaður og góður fyrirliði.
Miðjumaður: Florian Wirtz (Liverpool) - Við erum farin að sjá Wirtz stýra leikjum viku eftir viku. Mörkin og stoðsendingarnar eru farin að koma og spyrnur hans eru magnaðar.
Miðjumaður: Alex Scott (Bournemouth) - Skoraði gegn Úlfunum. Á sér þann draum að fara með Englandi á HM.
Miðjumaður: Noni Madueke (Arsenal) - Átti að vera á bekknum gegn Leeds en kom inn í byrjunarliðið vegna meiðsla Saka. Skilaði marki og stoðsendingu og er í liði umferðarinnar.
Miðjumaður: Habib Diarra (Sunderland) - Þó annað markið skráist sjálfsmark þá er hægt að segja að Diarra hafi skorað tvö og pakkað Burnley saman.
Sóknarmaður: Dominic Solanke (Tottenham) - Skoraði tvö skemmtileg mörk gegn City. Gæti hann verið í enska hópnum á HM?
Sóknarmaður: Hugo Ekitike (Liverpool) - Kaup tímabilsins? Líklega. Skoraði tvö mörk og virðist alltaf vera að bæta sig. Það verður erfitt fyrir Alexander Isak að komast í liðið.
Athugasemdir



