Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
banner
   þri 03. febrúar 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Spánn í dag - Verður Barcelona næsta bráð B-deildarliðsins?
Mynd: EPA
Spánar- og bikarmeistarar Barcelona heimsækja B-deildarlið Albacete í spænska konungsbikarnum klukkan 20:00 í kvöld.

Albacete hefur náð mögnuðum úrslitum í bikarnum á þessu tímabli en það kastaði Celta Vigo út eftir vítaspyrnukeppni í desember og henti þá óvænt stórliði Real Madrid úr leik í síðustu umferð með dramatískum 3-2 sigri.

B-deildarliðið gerir sér nú vonir um að henda ríkjandi bikarmeisturum Barcelona úr leik á heimavelli sínum í Albacete.

Sigurvegarinn úr viðureigninni mun fara áfram í undanúrslit bikarsins.

Leikur dagsins:
20:00 Albacete - Barcelona
Athugasemdir
banner
banner