Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
banner
   þri 03. febrúar 2026 14:38
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Mirror 
Valdi sigurvegara og tapara gluggans - Auðvelt val
John Cross segir að Manchester City séu sigurvegarar gluggans en Crystal Palace augljósir taparar.
John Cross segir að Manchester City séu sigurvegarar gluggans en Crystal Palace augljósir taparar.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ensku úrvalsdeildarfélögin eyddu yfir 400 milljónum punda í leikmannakaup í janúarglugganum.

John Cross, yfirmaður fótboltafrétta hjá Mirror, valdi mestu sigurvegara og tapara gluggans. Hann segir að það hafi ekki verið erfitt val.

„Þessi gluggi átti einn stóran sigurvegara og einn augljósan tapara. Sigurvegarinn er Manchester City. Félagið gerði frábær kaup með því að fá Marc Guehi fyrir um 30 milljónir punda og magnað að fá Antoine Semenyo fyrir 64 milljónir punda," segir Cross.

„Þeir fengu besta miðvörð Englands í dag og svo úrvalsdeildarvængmann sem hefur sannað sig og það gefur Pep Guardiola kraft. Tveir leikmenn sem geta hjálpað liðinu strax í að vinna titla og eru einnig framtíðarmenn fyrir minna en 100 milljónir punda eru frábær kaup."

„Mestu tapararnir eru Crystal Palace. Þeir töpuðu fyrirliða sínum þegar Guehi var seldur. Jean-Philippe Mateta lét síðan vita að hann vildi fara og hefði verið seldur til AC Milan en féll á læknisskoðun. Jú þeir fengu inn Jörgen Strand Larsen en skaðinn er skeður. Til að gera mánuðinn enn verri tilkynnti stjórinn Oliver Glasner að hann væri á förum í sumar."
Athugasemdir
banner