Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
banner
   mán 03. mars 2025 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Mané og Durán skoruðu ekki í Íran - Milos gerði jafntefli
Cristiano Ronaldo var ekki í hóp hjá Al-Nassr.
Cristiano Ronaldo var ekki í hóp hjá Al-Nassr.
Mynd: EPA
Mynd: Al Wasl
16-liða úrslitin eru byrjuð í asísku Meistaradeildinni þar sem fyrstu leikirnir fóru fram í kvöld.

Sadio Mané og Jhon Durán leiddu sóknarlínuna hjá Al-Nassr sem heimsótti Esteghlal til Íran en mistókst að skora.

Lokatölur urðu 0-0 í Íran þrátt fyrir yfirburði gestaliðsins frá Sádi-Arabíu, en Marcelo Brozovic og Mohamed Simakan voru einnig meðal byrjunarliðsmanna.

Lærisveinar Milos Milojevic í liði Al-Wasl gerðu þá 1-1 jafntefli á heimavelli gegn katarska stórveldinu Al-Sadd.

Al-Wasl var talsvert sterkari aðilinn í leiknum og klúðruðu heimamenn vítaspyrnu svo þeim tókst ekki að sigra.

Viðureignirnar eru því enn galopnar fyrir seinni leikina.

Esteghlal 0 - 0 Al-Nassr

Al-Wasl 1 - 1 Al-Sadd
1-0 A. Saleh ('3)
1-1 A. Al-Yazidi ('68)
Slapp
Athugasemdir
banner
banner
banner