Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
banner
   mán 03. mars 2025 16:30
Elvar Geir Magnússon
Rangers á leið undir 49ers sængina
Mynd: EPA
Eigendur bandaríska NFL félagsins San Francisco 49ers eru að kaupa 51% hlut í skoska stórliðinu Rangers í Glasgow.

Fyrir á hópurinn, 49ers Enterprises, Leeds United sem trónir á toppi Championship-deildarinnar.

Viðræður um kaupferlið á Rangers hafa staðið yfir undanfarna mánuði. Það er ákveðin ólga hjá Rangers en liðið er 16 stigum frá toppliði Celtic í skosku úrvalsdeildinni.

Stuðningsmenn Rangers hafa óttast að Rangers yrði nokkurs konar varalið Leeds í fæðukeðjunni eftir eigendaskiptin en Paraag Marathe, forseti 49ers Enterprises, segir að svo verði ekki.
Slapp
Athugasemdir
banner